Skip to main content

Terra Einingar festi kaup á öllu hlutafé Öryggisgirðinga ehf.

Öryggisgirðingar bjóða heildarlausnir á girðingum, hliðum og aðgangskerfum fyrir stofnanir, fyrirtæki, heimili og sumarhús. Fyrirtækið er þekkt á markaði fyrir gæða vörur og þjónustu og hefur byggt upp mjög farsæl viðskiptasambönd. Lausnirnar eru smíðaðar á Íslandi eftir þörfum viðskiptavina og veitir fyrirtækið heildarlausn á uppsetningu og viðhaldi.

Terra Einingar er leiðandi fyrirtæki í einingalausnum í formi húseininga og geymslulausna. Einingalausnir fyrirtækisins henta fyrir ólíka starfsemi allt eftir þörfum hvers og eins. Lausnirnar minnka byggingarkostnað, stytta framkvæmdatíma, styðja við sjálfbærni þar sem auðvelt er að endurnýta byggingarnar og færa þær til.  ,,Terra Einingar hefur verið í miklum vexti undanfarin ár og hafa húseiningar fyrirtækisins notið aukinna vinsælda þar sem sveigjanleikinn er í fyrirrúmi. Með kaupunum á Öryggisgirðingum sjáum við mikil tækifæri í auknu vöruúrvali beggja fyrirtækja sem saman munu styrkja stöðu sína á markaði. Eftirspurn eftir sveigjanlegum lausnum bæði hvað varðar húseiningar, girðingalausnir og aðgangskerfi hefur aukist verulega. Með breiðu vöruúrvali Terra Eininga og Öryggisgirðinga munu félögin byggja sterka heild sem öflugt fyrirtæki í iðnaði,”segir Fannar Örn Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Terra Eininga.